Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 29.4.2009
| 16:02
Fundað í þingflokkum
Formenn og varaformenn Vinstri grænna og Samfylkingar hafa þreifað áfram um stjórnarsamstarf flokkanna ásamt Össuri Skarphéðinssyni og Ögmundi Jónassyni, fulltrúum flokkanna í nefnd um Evrópumál. Þingflokkur Samfylkingar situr nú á fundi og ræðir stöðuna í stjórnarmyndunarviðræður við VG. Þingflokkur VG kemur saman til fundar klukkan 18.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






