Össur var næstur falli

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra stækka

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra mbl.is/RAX

mbl.is Eftir Þröst Emilsson

Fjöldi kjósenda sem strikaði yfir nafn Össurar Skarphéðinssonar, utanríkis- og iðnaðarráðherra og oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, var slíkur að fáa tugi útstrikana vantaði upp á að hann færðist niður um eitt sæti. Össur var nær því að færast til á framboðslistanum vegna útstrikana en Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sem skipaði fjórða sæti Samfylkingar í Reykjavík norður.

Alls strikuðu 1.284 kjósendur Reykjavíkurkjördæmis suður yfir nafn eða breyttu röð oddvitans, Össurar Skarphéðinssonar eða rétt um 11% þeirra sem kusu listann.

Samfylkingin í Reykjavík suður fékk fjóra þingmenn kjörna. Samkvæmt reiknireglum hefðu a.m.k. 11,1% kjósenda listans í kjördæminu þurft að strika yfir nafn oddvitans til að hann færðist niður um sæti. Þá er ekki tekið tillit til breytinga eða útstrikana hjá öðrum frambjóðendum.

Á það ber þó að líta að sú sem skipaði annað sæti listans í kjördæminu, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fékk aðeins 53 útstrikanir eða breytingar og því hefðu þær ekki vegið þungt í þessu sambandi.

Fjöldi þingmanna og sætaröð ræður

Áhrif útstrikana og breytinga á röð frambjóðenda ráðast annars vegar af fjölda þingmanna sem flokkur fær kjörinn í hverju kjördæmi og hins vegar af því í hvaða sæti sá frambjóðandi er, sem breytingar beinast að.

Eigi útstrikanir að hafa áhrif á oddvita lista sem einungis fær einn mann kjörinn þarf hlutfall útstrikana að vera 25% hið minnsta. Ef flokkur fær hins vegar 3 menn kjörna þarf hlutfall útstrikana hjá oddvita aðeins að vera 14,3%.

Þriðjungur hefði þurft að strika yfir nafn Kolbrúnar

Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra skipaði þriðja sætið á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi suður. 1.990 kjósendur VG strikuðu yfir nafn hennar eða breyttu röð. Þetta lætur nærri að vera 24,5% en engu að síður heldur Kolbrún þriðja sætinu.

Það skýrist af því að VG fékk tvo menn kjörna í Reykjavík suður og því  hefðu útstrikanir Kolbrúnar þurft að vera 33% að minnsta kosti til að hafa áhrif á sætaröð og er þá ekki tekið tillit til breytinga eða útstrikana annarra frambjóðenda á lista VG.

Steinunn fjarri því að færast niður

Sama er að segja um Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, sem skipaði fjórða sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. 1.443 kjósendur strikuðu yfir nafn hennar eða breyttu röð eða rúmlega 12% þeirra sem kusu Samfylkinguna í kjördæminu.

Samfylkingin fékk 4 menn kjörna í Reykjavík norður og þar sem Steinunn Valdís skipaði fjórða sæti listans hefðu 17% kjósenda eða þar um bil, þurft að strika hana út. Líkt og áður er ekki  tekið tillit til breytinga eða útstrikana annarra frambjóðenda á lista Samfylkingar en bæði Helgi Hjörvar, sem skipaði þriðja sætið og Mörður Árnason, sem skipaði fimmta sætið, fengu umtalsvert margar útstrikanir, sem vega upp á móti útstrikunum Steinunnar Valdísar.

25% hefðu þurft að strika Þráin út

Líkt og fram kom á mbl.is í gær, strikuðu 300 kjósendur Borgarahreyfingarinnar í Reykjavík norður, yfir nafn oddvitans, Þráins Bertelssonar. Þar sem flokkurinn fékk aðeins einn mann kjörinn í kjördæminu, skiptu þær útstrikanir litlu. 25% kjósenda Borgarahreyfingarinnar í kjördæminu eða ríflega þrefalt fleiri, hefðu þurft að strika yfir nafn Þráins, svo það hefði hugsanlega breytt sætaskipan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is