Miðstjórn frjálslyndra þingar
Miðstjórn Frjálslynda flokksins kemur saman til fundar síðdegis til að ræða niðurstöður kosninganna á laugardag og framtíðarstaf flokksins. „Sá hópur sem mætir til miðstjórnarfundar veltir hlutunum fyrir sér en ég geng hins vegar út frá því, eins og staðan er núna, að menn haldi áfram starfsemi flokksins,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.
Flokkurinn hlaut 4.148 atkvæði í kosningunum eða 2,2% atkvæða, náði engum manni inn á þing en hafði fjóra áður. Harðvítugar innanflokkserjur hafa verið í Frjálslynda flokknum um langt skeið og fólk í lykilstöðum sagði skilið við flokkinn fyrir kosningar. Þá hefur fyrrverandi varaformaður flokksins krafist afsagnar formannsins og allra helstu trúnaðarmanna vegna slakrar útkomu.
Guðjón Arnar segir að hann hafi heyrt í fjölda flokksmanna, vítt og breitt um landið eftir kosningar og ekki sé annað að heyra en að fólk vilji halda sínu striki og horfa til framtíðar.
„Það vill takast á við það sem út úr þessum kosningum kom og vinna að skipulagi fyrir framtíðina. Það sem framundan er, eru sveitarstjórnarkosningar á næsta ári,“ segir Guðjón Arnar.
Hann segir á næstu dögum komi fjárhagsstaða flokksins í ljós. Þá verði búið að fara yfir þær skuldbindingar sem flokkurinn hafi gengist undir.
„Kosningabaráttan var ekki dýr. Þetta eru einhverjar milljónir sem út af standa en þær fara ekki yfir tug, ég er klár á því. Við sniðum okkur stakk eftir vexti og fórum mjög sparlega með. Kannski kom það eitthvað niður á okkar fylgi hvað við auglýstum lítið, það kann að vera. En fólk á örugglega eftir að átta sig á því að það sem við vorum að tala um í aðdraganda kosninganna, í sambandi við atvinnumál og tekjur, er eitthvað sem verður að taka á sem fyrst,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson.






