Kemur ekki til greina

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins stækka

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins mbl.is/Kristinn

Ekki kemur til greina að Sjálfstæðisflokkurinn veiti  Samfylkingunni opið umboð til að fara til Brussel og semja um aðild Íslands að Evrópusambandinu, að sögn Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.

Niðurstaða stjórnarflokkanna um Evrópusambandsaðild er að Alþingi verði falið að ákveða endanlega hvort hafnar verði aðildarviðræður við Evrópusambandið. Bjarni segir erfitt að tjá sig um máið áður en hann  hefur séð hvernig það verður lagt fram en miðað við fréttir sé þetta staðan.

„Þetta er engin niðurstaða fyrir ríkisstjórnina. Þetta hljómar eins og Steingrímur ætli að leyfa Jóhönnu að leggja fram þingsályktunartillögu sem hefur enga aðra stöðu í þinginu en þingsályktunartillaga frá Borgarahreyfingunni eða einhverjum öðrum þingflokki. Það er staða málsins í þinginu," segir Bjarni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að hann telji að þingið muni samþykkja almennt þingsályktunartillögu um að fara út í viðræður við Evrópusambandið. Hann kveðst þó telja að það muni ekki ná lengra ef ríkisstjórnin er ekki sammála um málið. „Ég sé ekki fyrir mér að þingið mundi veita Samfylkingunni einni umboð til að fara í slíkar viðræður," segir Sigmundur Davíð.

Sigmundur Davíð, formaður Framsóknarflokksins.

Sigmundur Davíð, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Kristinn

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is