Flokksstjórn Samfylkingar þingar um stjórnarsáttmála

Flokksstjórnarfundur Samfylkingar á Sögu stækka

Flokksstjórnarfundur Samfylkingar á Sögu mbl.is/Árni Sæberg

Fundur flokksstjórnar Samfylkingarinnar hófst í Súlnasal Hótels Sögu klukkan eitt. Þar verður stjórnarsáttmálinn kynntur og sömuleiðis ráðherraskipan. Þingflokkur Samfylkingarinnar þingaði áður en flokksstjórn kom saman og gekk frá ráðherraskipan.

Ný ríkisstjórn veðrur kynnt í Norræna húsinu klukkan fjögur í dag. Að því loknu verður efnt til tveggja ríkisráðsfunda á Bessastöðum. Ríkisstjórn VG og Samfylkingar verður söguleg að því leyti að þetta verður fyrsta meirihlutastjórn tveggja vinstri flokka á Íslandi.

Meginstef stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar verður endurreisn íslensks samfélags, aðgerðir í þágu heimilanna og fyrirtækja, endurreisn bankakerfis og uppbygging atvinnulífs.

Líklegt er að ráðuneytum fækki um eitt að minnsta kosti og liggur fyrir tillaga um atvinnuvegaráðuneyti, sem fari með verkefni sem nú eru hjá iðnaðar-, landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneytum. Stærri uppstokkanir á stjórnskipan bíða að líkindum til áramóta.

Tveir nýir ráðherrar eru nefndir, þau Svandís Svavarsdóttir VG og Árni Páll Árnason, Samfylkingu.

Rætt er um að Alþingi verði kvatt saman eftir viku, annaðhvort föstudaginn 15 maí eða mánudaginn 18. maí. Ekkert hefur þó verið endanlega ákveðið í þeim efnum.

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar á Sögu

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar á Sögu mbl.is/Árni Sæberg

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is