Innlent
|
Kosningar
| Morgunblaðið
| 20.5.2009
| 5:30
| Uppfært
6:01
Kosningabaráttan kallaði á fjarveru
sia@mbl.is
Hann tekur þó fram að hann hafi komið að undirbúningi fundanna ásamt samstarfsfólki sínu.
Varamaður tekur sæti þegar aðalmaður mætir ekki, en að sögn Dags fylgir enginn aukakostnaður í tilviki borgarráðs. Spurningunni hvort hann sjálfur fái greitt fyrir þá fundi sem hann sitji ekki svarar hann þannig að greidd séu föst laun í borgarstjórn og fyrir stjórnarsetu í Faxaflóahöfnum en ekki fyrir einstaka fundi.
Frá áramótum hafa verið haldnir fimm fundir hjá Faxaflóahöfnum, Dagur hefur setið þrjá, 10 fundir í borgarstjórn, Dagur hefur setið níu, og í borgarráði hafa verið haldnir 16 fundir frá áramótum, Dagur hefur setið sjö þeirra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






