Vill 5. sætið á Seltjarnarnesi

Haraldur Eyvinds Þrastarson.
Haraldur Eyvinds Þrastarson.

Haraldur Eyvinds Þrastarson, viðskiptafræðingur, gefur kost á sér í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar, en prófkjörið fer fram  þann 7. nóvember næstkomandi.

Haraldur sat lengi í Íþrótta og tómstundaráði Seltjarnarness og hefur starfað með íþróttafélaginu Gróttu. Haraldur hefur búið á Seltjarnarnesi frá 3ja ára aldri.

Haraldur er kvæntur Ástu Sigvaldadóttur, stuðningsfulltrúa við Valhúsaskóla og eiga þau tvö börn.  Haraldur starfar sem deildarstjóri hjá Skiptum hf. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert