Júlíus Vífill vill 2. sætið

Júlíus Vífill Ingvarsson. stækka

Júlíus Vífill Ingvarsson.

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi, býður sig fram í 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann var í 5. sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar vorið 2006 en bauð sig einnig fram í 2. sætið í prófkjöri, sem þá var haldið.

Júlíus Vífill er lögfræðingur að mennt en lagði einnig stund á tónlistarnám og starfaði sem óperusöngvari um árabil. Fram til árins 2003 var hann framkvæmdastjóri í atvinnurekstri á samkeppnismarkaði.  

Hann er formaður skipulagsráðs Reykjavíkur og formaður Faxaflóahafna sf. en fyrri hluta þessa kjörtímabils var Júlíus Vífill formaður menntaráðs Reykjavíkur. Hann hefur setið í borgarstjórn í samtals tvö kjörtímabil. Júlíus Vífill er stjórnarformaður Íslensku óperunnar og situr í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann er formaður stjórnar Skákakademíu Reykjavíkur og Tónlistarskólans í Reykjavík.

Júlíus Vífill er kvæntur Svanhildi Blöndal, presti og hjúkrunarfræðingi. Þau eiga fjögur börn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is