Hermann stefnir á þriðja sætið hjá VG

Hermann Valsson stækka

Hermann Valsson

Hermann Valsson býður sig fram í 3. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík (VGR) fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Í tilkynningu kemur fram að hann hafi verið félagi í VG frá  árinu 2000 og setið í stjórn VGR meira og minna frá árinu 2006. Í stjórn VGR hefur hann meðal annars gengt starfi formanns og gjaldkera.
 
„Í síðustu borgarstjórnakosningum sat ég í 5. sæti á lista VG. Á kjörtímabilinu hef ég setið í stjórn íþrótta- og tómstundaráðs,  leikskólaráði og menningar- og ferðaráði, ýmist sem aðal eða varamaður. Ég hef verið aðalmaður í Hverfisráði Grafaholts og er nú fulltrúi VG í stjórn útivistarsvæða Orkuveitu Reykjavíkur. Á stjórnartíma Tjarnarkvartetsins svokallaða var ég jafnframt formaður stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
 
Frá síðustu Alþingiskosningum hef ég auk starfa sem varaborgarfulltrúi sinnt störfum fyrir borgarstjórnarflokk VG," að því er segir í tilkynningu frá Hermanni.

Hann er menntaður íþróttakennari kennir við Norðlingaskóla auk þess sem hann leggur stund á meistaranám í lýðheilsufræðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is