Samfylkingarfólk vill eitt framboð

Ólafur Þór Ólafsson stækka

Ólafur Þór Ólafsson mbl.is

Útlit er fyrir að samfylkingarfólk bjóði fram saman í Sandgerði í vor. Það var á tveimur listum við síðustu kosningar. Stefnt er að prófkjöri í næsta mánuði.

Samfylkingin bauð í fyrsta skipti fram undir eigin listabókstaf í Sandgerði í síðustu sveitarstjórnakosningum. Áður átti Samfylkingarfélagið og þar áður Alþýðuflokkurinn aðild að K-lista óháðra borgara.

K-listinn bauð eigi að síður fram og hefur verið í meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn um stjórnun bæjarfélagsins en fulltrúar S-listans verið í minnihluta.

Óskar Gunnarsson, oddviti K-listans, er forseti bæjarstjórnar og Sigurður Valur Ásbjarnarson, oddviti sjálfstæðismanna, er bæjarstjóri. Óskar hefur lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér áfram.

Þreifingar hafa verið með fólkinu sem stendur að K-lista og S-lista um sameiginlegt framboð í vor. Bæjarmálaráð S-listans samþykkti á fundi sínum í gær tillögu um að fara fram með K-listanum. Ólafur Þór Ólafsson, oddviti S-listans, segir að samþykkt hafi verið að efna til prófkjörs í næsta mánuði og greiða þá jafnframt atkvæði um það hvor nota eigi S eða nýjan bókstaf á framboðið. Ólafur tekur það fram að þessi tillaga eigi eftir að fara fyrir aðalfund félagsins.

Ólafur Þór telur meiri líkur en minni að af þessu verði. „Þetta verður þá listi sem stefnir að hreinum meirihluta,“ segir Ólafur Þór.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is