Stefnir á 2-3. sætið í Hafnarfirðinum
Gunnar Axel Axelsson, viðskiptafræðingur og formaður Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar sem haldið verður 30. janúar næstkomandi vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Gunnar Axel sækist eftir stuðningi í 2-3. sæti í prófkjörinu.
Gunnar Axel Axelsson er fæddur á Sólvangi í Hafnarfirði þann 3. apríl árið 1975 og er því 34 ára gamall. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og útskrifaðist með BS próf í viðskiptafræðum frá Háskólanum á Bifröst árið 2003. Á árunum 2003-2005 stundaði Gunnar Axel framhaldsnám í viðskiptafræðum við Viðskiptaháskólann í Árósum. Undafarin misseri hefur Gunnar Axel stundað meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands og stefnir á útskrift næsta vor.
Síðastliðin 5 ár hefur hann starfað við rannsóknir á sviði launa- og kjaramála hjá Hagstofu Íslands og gegnir þar stöðu sérfræðings í dag.
Gunnar Axel hefur setið í stjórn Samfylkingarinnar í Hafnarfirði frá árinu 2007 og gegnt þar formennsku frá árinu 2008. l
Gunnar Axel er giftur Katrínu N. Sverrisdóttur leikskólakennara og á hann þrjú börn, Sigrúnu Líf, Daníel Karl og Aðalbjörn.






