Hanna Birna fékk 84% atkvæða í 1. sæti

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri varð í fyrsta sæti í prófkjörinu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri varð í fyrsta sæti í prófkjörinu. mbl.is Golli

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hlaut 84% gildra atkvæða í fyrsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík og 91,7% alls. Júlíus Vífill Ingvarsson varð í öðru sæti. Á kjörskrá voru 19.715 manns. Atkvæði greiddu 7.173.

Gild atkvæði voru 6.847. Ógild atkvæði og auð voru 317. Auð atkvæði voru 9. Þeir fimm sem kepptu um annað sætið raða sér í næstu fimm sætin á eftir oddvitanum.  Alls buðu 18 sig fram í prófkjörinu og árangur kvenna var góður en þær skipa sex af tíu efstu sætum listans.  Geir Sveinsson og Hildur Sverrisdóttir verða ný á lista.

Niðurstaða prófkjörsins var þessi:

1.   Hanna Birna Kristjánsdóttir með 5.746 atkvæði í 1. sæti.        
2.   Júlíus Vífill Ingvarsson með 1.816 atkvæði í 1.-2. sæti.
3.   Kjartan Magnússon með 2.092 atkvæði í 1.-3. sæti.
4.   Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir með 2.519 atkvæði í 1.-4. sæti.
5.   Gísli Marteinn Baldursson með 2.725 atkvæði í 1.-5. sæti.
6.   Geir Sveinsson með 3.049 atkvæði í 1.-6. sæti.
7.   Áslaug María Friðriksdóttir með 3.353 atkvæði í 1.-7. sæti.
8.   Jórunn Frímannsdóttir með 3.749 atkvæði í 1.-8. sæti.
9.   Hildur Sverrisdóttir með 3.892 atkvæði í 1.-9. sæti.
10. Marta Guðjónsdóttir með 3.503 atkvæði í 1.-9. sæti.

Aðrir hlutu færri atkvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert