Bjarni biðst afsökunar á auglýsingu
Sr. Bjarni Karlsson biður í yfirlýsingu samframbjóðendur sína í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík afsökunar á auglýsingu, sem birtist í fréttablaðinu í dag þar sem nafngreindir aðilar mæla með framboði Bjarna. Segir Bjarni að sér hafi verið bent á að reglur prófkjörsins geri ráð fyrir að ekki megi auglýsa framboð frambjóðenda sjálfra með beinum hætti.
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
Í Fréttablaðinu í dag er auglýsing þar sem nafngreindir aðilar mæla með framboði mínu vegna prófkjörs Samfylkingarinnar. Mér hefur verið bent á þá staðreynd að reglur prófkjörsins gera ráð fyrir því að auglýsa megi viðburði frambjóðenda en ekki framboð þeirra sjálfra með beinum hætti, og átta ég mig á að hér hef ég og stuðningsmenn mínir farið of geyst. Ég harma það því að ég er stoltur af samframbjóðendum mínum og ætlun mín var ekki sú að skemma þá liðsheild sem við einmitt erum að skapa. Ég hef verið feginn því að tilheyra prófkjöri þar sem ekki má verja meiru en fimm hundruð þúsund krónum til framboðsins og raunar mun minn kostnaður verða langt undir því marki.
Þessi mistök sýna að ég er nýliði í pólitík og að stærstur hluti þeirra sem með mér standa eru það líka. Hluti skýringarinnar er sú að ég hef orðið að sinna prófkjörsbaráttunni samhliða fullu sóknarprestsstarfi og ekki getað haldið úti kosningaskrifstofu eða öðru slíku heldur hefur öll vinna verið unnin af vinum og vandamönnum og enda þótt ég hafi talið mig þekkja reglurnar þá yfirsást mér þetta atriði.
Ég finn mig knúinn til að biðja samframbjóðendur mína afsökunar og fullvissa þá og stuðningsmenn þeirra ásamt kjörstjórn Samfylkingarinnar um að á bak við þessa auglýsingu lá ekki viðleitni til að sveigja reglur í því mikilvæga samstarfi sem prófkjörið er. Vona ég að þetta frumhlaup verið ekki til þess að skemma samstöðu okkar í framhaldinu.






