Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 30.1.2010
| 21:19
Guðmundur Rúnar efstur í Hafnarfirði
Guðmundur Rúnar Árnason bæjarfulltrúi og stjórnmálafræðingur, er í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði þegar um 35% atkvæða hafa verið talin, um 390 talsins. Margrét Gauja Magnúsdóttir kennari og bæjarfulltrúi er í öðru sæti. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri er í sjötta sæti listans en hann gaf kost á sér í það sæti.
1. Guðmundur Rúnar Árnason 197 atkvæði
2. Margrét Gauja Magnúsdóttir 99 atkvæði.
3. Gunnar Axel Axelsson 159 atkvæði.
4. Guðfinna Guðmundsdóttir124 atkvæði.
5. Sigríður Björk Jónsdóttir 149 atkvæði.
6. Lúðvík Geirsson 319 atkvæði.
7. Gísli Ó Valdimarsson 147 atkvæði.
8. Guðný Stefánsdóttir 153 atkvæði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







