Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 30.1.2010
| 17:42
Hermann í fyrsta sæti á Akureyri
Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, hafnaði í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri sem lauk klukkan 17 í dag. Hlaut Hermann Jón 754 atkvæði en Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, hafnaði í öðru sæti í prófkjörinu. Logi Már Einarsson, arkitekt, skipar þriðja sætið á listanum.
1. Hermann Jón Tómasson 754 atkvæði
2. Sigrún Stefánsdóttir 512 atkvæði
3. Logi Már Einarsson 538 atkvæði
4. Ragnar Sverrisson 468 atkvæði
5. Helena Þuríður Karlsdóttir 552 atkvæði
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






