Guðmundur Rúnar í fyrsta sæti í Hafnarfirði
Guðmundur Rúnar Árnason mun leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri hafnaði í sjötta sæti líkt og hann stefndi að. Alls greiddu 1127 atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði af þeim 2150 sem voru á kjörskrá sem gerir 52.4% kjörsókn. 1091 atkvæði voru gild.
Lokaröð efstu manna varð þessi:
1. Guðmundur Rúnar Árnason 519 atkvæðii í fyrsta sæti
2. Margrét Gauja Magnúsdóttir 273 atkvæði í fyrsta til annað sæti
3. Gunnar Axel Axelsson 456 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti
4. Eyjólfur Þór Sæmundsson 313 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti
5. Sigríður Björk Jónsdóttir 347 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti
6. Lúðvík Geirsson 905 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti
7. Guðfinna Guðmundsdóttir 398 atkvæði í fyrsta til sjöunda sæti
8 Gísli Ó Valdimarsson 380 atkvæði í fyrsta til áttunda sæti
Kjörnefnd hefur ákveðið að telja aftur til staðfestingar og ljúka því verki fyrir mánudagskvöld.






