Fréttatilkynning frá Borgarmálafélagi F-listans

Vegna yfirlýsingar frá Frjálslynda flokknum sem birt var í fjölmiðlum í gær vill Borgarmálafélag F-listans í Reykjavík taka fram eftirfarandi.

„Það er rangfærsla hjá landsstjórn Frjálslynda flokksins að F-listinn í Reykjavík sé einkahlutafélag Ólafs F. Magnússonar eins og fram kemur í yfirlýsingu frá Frjálslynda flokknum í fjölmiðlum. Auglýsingin í Fréttablaðinu 2. febrúar 2010 er frá Borgarmálafélagi F-listans í Reykjavík sem  hefur verið starfandi frá árinu 2002 og er stjórnmálafélag óháðra með Ólaf  F. Magnússon sem oddvita og Frjálslynda flokksins. Landsstjórn Frjálslynda flokksins hefur aldrei gert málefnalegar athugasemdir við stefnu F-listans í Reykjavík fyrr en nú að þeir sækist eftir fjárframlögum frá Reykjavíkurborg sem ætluð eru til reksturs F-lista frjálslyndra og óháðra í Reykjavík.

Aldrei hefur þurft að sýna flokksskírteini Frjálslynda flokksins til að bjóða sig fram til borgarstjórnar Reykjavíkur eða annarra starfa undir merkjum F-listans þótt flestir í borgarmálafélaginu séu félagsmenn í Frjálslynda flokknum. Sameiginlegur fundur stjórna kjördæmafélaganna í Reykjavík hefur lýst stuðningi við störf Ólafs F. Magnússonar í borgarstjórn og harmað grófar rangfærslur og ósæmilega framkomu Guðjóns Arnar Kristjánssonar formanns flokksins í garð Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa F-listans."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is