10 í prófkjöri framsóknarmanna í Mosfellsbæ
10 gefa kost á sér í prófkjöri framsóknarmanna í Mosfellsbæ sem fer fram laugardaginn 27. febrúar. Framboðsfrestur rann út á hádegi 1. febrúar sl.
Eftirtaldir gefa kost á sér til þátttöku í prófkjörinu:
Marteinn Magnússon (sækist eftir 1. sæti)
Bryndís Bjarnarson (sækist eftir 2. sæti)
Snorri Hreggviðsson (sækist eftir 2. sæti)
Ásta Björk Benediktsdóttir (sækist eftir 2.-3. sæti)
Björg Reehaug Jensdóttir (sækist eftir 2.-3. sæti)
Guðni Þorbjörnsson (sækist eftir 3.-5. sæti)
Linda Björk Stefánsdóttir (sækist eftir 3.-4. sæti)
Sveinbjörn Ottesen (sækist eftir 4. sæti)
Eggert Sólberg Jónsson (sækist eftir 5.-6. sæti)
Óli Kárason Tran (sækist eftir 5.-6. sæti)
Prófkjörið fer fram laugardaginn 27. febrúar nk. frá klukkan 10-15 í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar að Háholti 14 í Mosfellsbæ. Prófkjörið er opið öllum sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn, eru með kosningarétt og lögheimili í Mosfellsbæ á kjördegi. Utankjörstaðakosning fer fram dagana 22.-26.febrúar á milli klukkan 13-17 á skrifstofu Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 33 Reykjavík.






