Metþátttaka í prófkjörum

Prófkjör eru hjá Sjálfstæðisflokknum í fjórum bæjarfélögum.
Prófkjör eru hjá Sjálfstæðisflokknum í fjórum bæjarfélögum.

Mjög góð þátttaka er í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi og í Grindavík. Í báðum sveitarfélögunum höfðu mun fleiri kosið fyrir klukkan fimm en í heildina fyrir fjórum árum og var þó rúmur klukkutími eftir.

Sjálfstæðisflokkurinn heldur í dag prófkjör í Mosfellsbæ, Garðabæ, á Álftanesi og í Grindavík og VG efnir til forvals í Reykjavík og á Akureyri.

210 höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi fyrir klukkan fimm. 370 eru þar á kjörskrá. Þátttaka er mun meiri en fyrir fjórum árum.

„Það er mikill áhugi fyrir þessa. Fólk vill leggja sitt af mörkum í þeirri stöðu sem við erum í,“ segir Sveinn Ingi Lýðsson, formaður kjörstjórnar. 

190 höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Grindavík fyrir klukkan fimm. Á kjörskrá voru 230 í morgun en um fjörutíu til viðbótar höfðu skráð sig í flokkinn í dag. 

Um 140 tóku þátt í prófkjörinu í Grindavík fyrir fjórum árum.

Kjörstöðum í Grindavík og á Álftanesi er lokað klukkan 18 í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert