Fólk vildi breytingar

Snorri Finnlaugsson leiðir lista sjálfstæðismanna á Álftanesi. stækka

Snorri Finnlaugsson leiðir lista sjálfstæðismanna á Álftanesi.

„Það var greinilegt að fólk vildi breytingar. Ég var hvattur til að fara í þetta aftur,“ segir Snorri Finnlaugsson fjármálastjóri sem sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna á Álftanesi í gær. Hann mun þannig þurfa að takast á við erfiða stöðu bæjarsjóðs.

Snorri mun leiða lista sjálfstæðismanna við sveitarstjórnakosningarnar í maí, að er að segja ef þar verður kosið.

Mikil óvissa er í bæjarfélaginu vegna erfiðrar fjárhagsstöðu bæjarsjóðs. Tillögur um að skipa sérstaka fjárhaldsstjórn til að vinna með bæjarstjórn bíða afgreiðslu samgönguráðherra og rætt hefur verið um að sameina Álftanes öðru sveitarfélagi.

Snorri reiknar með að það taki nokkurn tíma að vinna að sameiningu og telur víst að kosið verði til bæjarstjórnar í vor.

Snorri er enginn nýgræðingur í bæjarmálunum á Álftanesi því hann sat þar í bæjarstjórn 1998 til 2005. Þá flutti hann á Selfoss og sat í bæjarstjórn þar í tvö ár, að fjölskyldan flutti aftur á Álftanes fyrir rúmu ári.

Hann viðurkennir að hik hafi komið á hann þegar hann fékk hvatningu um að fara í framboð en lét svo slag standa. „Þetta er bara verkefni sem þarf að vinna. Við þurfum að vinna úr þessari stöðu,“ segir hann.

Snorri hefur alla tíð starfað við rekstur, fjármál og bókhald og reiknar með að sú reynsla hafi aflað honum trausts í prófkjörinu.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is