Þorleifur kærir póstkosningu VG

Þorleifur Gunnlaugsson og Sóley Tómasdóttir bíða eftir fyrstu tölum á laugardagskvöld. stækka

Þorleifur Gunnlaugsson og Sóley Tómasdóttir bíða eftir fyrstu tölum á laugardagskvöld. mbl.is/GSH

Þorleifur Gunnlaugsson hefur gert kært framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík um helgina. Þorleifur sóttist  eftir fyrsta sætinu en tapaði því fyrir Sóleyju Tómasdóttur og hreppti sjálfur annað sætið.

Að sögn Stefáns Pálssonar formanns kjörstjórnar gerir Þorleifur athugasemdir við póstkosninguna þar sem hann telji að hluti hennar kunni að hafa orkað tvímælis.

„Öðrum þræði er hann bara að spyrja út í hluti sem hann vill fá staðfesta," segir Stefán. „Hann tekur reyndar fram í skeytinu að hann sé ekkert að falast eftir fyrsta sætinu enda liggur það alveg fyrir að jafnvel þó svo brugðist yrði við þessu með því að taka öll utankjörfundaratkvæðin út þá breytir það ekki niðurstöðunni."

Stefán segir málið því fyrst og fremst snúast um að greiða úr vafaatriðum. Sömu reglur hafi hinsvegar verið notaðar við kosningarnar í ár líkt og í tveimur síðustu forvölum VG og þær hafi reynst vel. „En maður skilur þetta alveg, þessi kærufrestur er til staðar og það er sjálfsagt mál að bregðast við því enda  gott að fá þessa hluti á hreint upp á framtíðina að gera.  En þetta mun ekki hafa nein áhrif á úrslitin."

Kjörstjórnin mun taka athugasemdir Þorleifs til skoðunar síðar í dag og verður niðurstaðan kunngerð eftir að kærufrestur rennur út í kvöld reglum samkvæmt, tveimur sólarhringum eftir að úrslit lágu fyrir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is