Eiríkur sigraði á Ísafirði
Eiríkur Finnur Greipsson frá Flateyri er nýr oddviti sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ. Bæjarins besta
Röð þriggja efstu manna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði breyttist ekki, þegar lokatölur voru birtar í kvöld. Eiríkur Finnur Greipsson sigraði með 479 atkvæði í 1. sæti. Gísli H. Halldórsson varð annar með 275 atkvæði í 1.-2. sæti og Guðfinna M. Hreiðarsdóttir varð þriðja með 356 atkvæði í 1.-3. sæti.
Á kjörskrá voru 992 manns. Atkvæði greiddu 820. Kjörsókn var því 82,6%, sem verður að teljast mjög góð. Gild atkvæði voru 791 og ógild voru 29.
Sú breyting varð frá fyrstu tölum að Kristín Hálfdánsdóttir fór upp um eitt sæti, í það fjórða með 380 atkvæði í 1.-4. sæti. Margrét Halldórsdóttir endaði í 5. sæti með 469 atkvæði í 1.-5. sæti og Guðný Stefanía Stefánsdóttir sjötta með 546 atkvæði í 1.-6. sæti. Aðrir frambjóðendur fengu færri atkvæði og röð þeirra er ekki gefin upp af kjörnefnd.






