Geir Kristinn í 1. sæti á L-lista

Frambjóðendur L-listans.
Frambjóðendur L-listans.

Geir Kristinn Aðalsteinsson, 35 ára rekstrarstjóri hjá Vodafone, verður í 1. sæti L-listans við bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í maí. Oddur Helgi Halldórsson, sem verið hefur oddviti og bæjarfulltrúi listans frá því hann kom fram árið 1998, er í þriðja sæti nú.

Í tilkynningu segir, að L-listinn sé engum háður og hafi einblínt á að rödd hins almenna bæjarbúa fái að hljóma í bæjarstjórn Akureyrar.  

Efstu sæti L-listans skipa

  1. Geir Kristinn Aðalsteinsson, 35 ára rekstrarstjóri hjá Vodafone
  2. Halla Björk Reynisdóttir, 42 ára flugumferðarstjóri
  3. Oddur Helgi Halldórsson, 50 ára blikksmiður og bæjarfulltrúi
  4. Tryggvi Gunnarsson, 44 ára sölumaður
  5. Hlín Bolladóttir, 46 ára grunnskólakennari.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert