Árni með 90% atkvæða
Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ hefur fengið um 90% atkvæða í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Böðvar Jónsson er í öðru sæti listans þegar talin hafa verið 668 atkvæði.
Á kjörskrá voru um 2600 manns og kjörsókn var yfir 50%, en ekki liggur fyrir hver endanleg kjörsókn var við lok prófkjörsfundar.
Þegar talin hafa
verið 668 atkvæði er staða eftstu frambjóðenda þessi:
1. Árni
Sigfússon með 599 atkvæði í 1. sæti
2. Böðvar Jónsson með 301 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Gunnar Þórarinsson með 310 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Magnea Guðmundsdóttir með 320 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Einar Þ. Magnússon með 334 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Baldur Guðmundsson með 451 atkvæði í 1.-6. sæti
7. Björk Þorsteinsdóttir með 418 atkvæði í 1.-7. sæti
Aðrir hlutu færri atkvæði.
|
|
Nánari upplýsingar |






