Tvö prófkjör í dag
Tvö prófkjör fara fram í dag fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, hjá Sjálfstæðisflokknum í Árborg og Framsóknarflokknum í Fjarðabyggð. Kjörið hófst í morgun og stendur fram eftir degi í dag. Fyrstu tölur frá Árborg eru væntanlegar um hálfsjö í kvöld en á hádegi höfðu um 300 manns kosið.
Í Árborg er kosið á Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri til kl. 18. Frambjóðendur í prófkjörinu eru 12 talsins: Ari Björn Thorarensen, fangavörður og varabæjarfulltrúi, Brynhildur Jónsdóttir forstöðumaður, Elfa Dögg Þórðardóttir, mannvirkja- og umhverfisfulltrúi og bæjarfulltrúi, Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Grímur Arnarson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Guðmundur Björgvin Gylfason kennari, Gunnar Egilsson, framkvæmdastjóri, Kjartan Björnsson, rakari, Ragnheiður Guðmundsdóttir, verslunarmaður, Sandra Dís Hafþórsdóttir, fjármálastjóri, Tómas Ellert Tómasson, verkfræðingur og Þorsteinn Magnússon, fasteignasali.
Sex gefa kost á sér í prófkjöri B-lista Framsóknarfélags Fjarðabyggðar:
Eiður Ragnarsson í 2. sæti, Gísli Þór Briem í 2.-4. sæti, Guðmundur Þorgrímsson í 1. sæti, Jón Baldursson í 3.-6. sæti, Jón Björn Hákonarson í 1. sæti, Jósef Auðunn Friðriksson í 2. sæti, Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir í 3.-4. sæti og Tinna Hrönn Smáradóttir í 5.-6. sæti. Kosið verður í 6 efstu sæti listans.






