Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 15.3.2010
| 16:24
Sigurjón í formannskjör
Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingismaður, gefið kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum. Landsþing Frjálslynda flokksins verður haldið um næstu helgi en Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, gefur ekki kost á sér til endurkjörs.
Þetta kemur fram á vef flokksins. Þar er einnig yfirlýsing frá Ástu Hafberg um að hún bjóði sig fram í embætti varaformanns flokksins. Ásta stundar nám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






