Bjóða fram í Húnaþingi vestra
Framboðslisti sjálfstæðismanna og óháðra fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 29. maí nk. var samþykktur samhljóða á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélagsins í Húnaþingi vestra.
Leó Örn Þorleifsson lögfræðingur og forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs mun leiða sameinaðan lista sjálfstæðismanna og óháðra sem er talsvert breyttur frá yfirstandandi kjörtímabili. Framboðslistann skipa:
1. Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður og lögfræðingur
2. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur
3. Stefán Einar Böðvarsson, bóndi og sveitarstjórnarmaður
4. Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir, bóndi
5. Gunnar Þorgeirsson, bóndi
6. Rakel Runólfsdóttir, sérfræðingur og sveitarstjórnarmaður
7. Guðrún Lára Magnúsdóttir, leikskólastjóri
8. Þórarinn Óli Rafnsson, rafiðnaðarmaður
9. Sigrún Birna Gunnarsdóttir, bóndi
10. Halldór Sigfússon, viðskiptafræðingur
11. Örn Óli Andrésson, bóndi
12. Valur Karlsson, vélstjóri
13. Guðný Helga Björnsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður
14. Kristín Jóhannesdóttir, bóndi






