Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 1.5.2010
| 12:35
Vilja Hönnu Birnu áfram
Flestir vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gegni borgarstjóraembættinu að loknum kosningum, samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö.
36,6% þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni vilja Hönnu Birnu, 31 prósent vill að Dagur B Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar verði næsti borgarstjóri og 25,7 prósent vilja að Jón Gnarr, leiðtogi Besta flokksins setjist í stól borgarstjóra að loknum kosningum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






