Samþykkt að fara yfir stjórnkerfi borgarinnar

Skýrsla rannsóknarnefndarinnar. stækka

Skýrsla rannsóknarnefndarinnar. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar borgarráðsfulltrúa VG um rannsókn á  stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var samþykkt í borgarráði í dag.

Þorleifur lagði aðra tillögu  fram í borgarráði fyrir viku en  breytti hennii lítilega með tilliti til athugasemda sem borist hafa, að því er segir í tilkynningu frá VG.

„Lagt er til að skipuð verði nefnd þriggja óháðra sérfræðinga sem hafi það verkefni að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og leggja fram tillögur að þeim breytingum sem hún telur þörf á.

Nefndin fái aðgang að skjalasafni Reykjavíkurborgar og fyrirtækja hennar og sé jafnframt heimilt að kalla fyrir sig aðila í stjórnkerfi borgarinnar. Þá leiti hún upplýsinga hjá aðilum utan stjórnkerfisins eftir þörfum.
Nefndin skal leggja fram starfsáætlun fyrir 1. júní 2010, þar sem fram komi m.a. umfang og áherslur í starfinu, auk áætlaðs kostnaðar. Lokaskýrsla nefndarinnar liggi svo fyrir eigi síðar en 31. desember 2010. Kjaranefnd skal ákvarða laun og önnur starfskjör nefndarmanna," segir í tillögu VG.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is