VG tekur þátt í 25 framboðum

Nokkrir af oddvitum VG í kosningunum í vor. stækka

Nokkrir af oddvitum VG í kosningunum í vor. hag / Haraldur Guðjónsson

Vinstrihreyfingin - grænt framboð, VG, býður fram eigin lista í 14 sveitarfélögunum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí. Tvö framboð eru undir hatti VG og óháðra, auk þess sem flokkurinn tekur þátt í níu blönduðum framboðum. Alls verða áherslur VG því í boði í 25 sveitarfélögum í kosningunum, samkvæmt tilkynningu frá VG. Að auki eiga félagar í VG víða sæti á óflokksbundnum listum.

VG býður nú í þriðja sinn fram til sveitarstjórnarkosninga frá því að flokkurinn var stofnaður árið 1999. Fyrst tók hann þátt í kosningunum árið 2002 með lista á átta stöðum. Árið 2006 bauð VG fram í 12 sveitarfélögum og fékk alls 21 fulltrúa kjörinn, til samanburðar við aðeins þrjá í fyrstu kosningum VG fjórum árum áður.

VG býður fram V-lista á eftirtöldum stöðum: Akranesi, Akureyri, Árborg, Borgarbyggð, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Norðurþingi, Reykjanesbæ, Reykjavík, Seyðisfirði, Strandabyggð, Hornafirði og Skagafirði. Með óháðum er VG með lista í Grindavík og Rangárþingi eystra.

Þá kemur VG að blönduðum framboðum á eftirtöldum stöðum:

Álftanesi (Á-listi), Fljótsdalshéraði (L-listi), Grundarfirði (L-listi), Hveragerði (A-listi), Ísafirði (Í-listi), Seltjarnarnesi (N-listi), Stykkishólmi (L-listi), Vestmannaeyjum (V-listi) og  Ölfusi (Ö-listi).

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is