Meirihlutinn ánægður með Hönnu Birnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir

70% Reykvíkinga finnst Hanna Birna Kristjánsdóttir standa sig vel í starfi borgarstjóra.  Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Þar kemur fram að tæplega 30% töldu hana hafa staðið sig mjög illa eða illa í starfi sem borgarstjóri.

Könnun var gerð þann 4. til 10. maí.  816 borgarbúar á aldrinum 18-67 ára voru spurðir en þeir voru valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR, að því er segir í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert