Frjálslyndir í Reykjavík vilja fríar skólamáltíðir
Fríar skólamáltíðir eru meðal þess sem Frjálslyndi flokkurinn í Reykjavík leggur áherslu á fyrir komandi kosningar. Þá vill flokkurinn auka völd íbúa og gera þeim kleift að fara fram á kosningar um mikilvæg mál, að því er fram kemur á vefsíðu flokksins.
„Þegar þúsundir fjölskyldna ná ekki endum saman verður að bregðast við. Lágmarkskrafa er að tryggja afkomu borgaranna. Stefna ber að fríum skólamáltíðum til að tryggja öllum börnum daglega næringu," segir um megináherslur í Reykjavík á vefsíðu Frjálslynda flokksins.
Frjálslyndir í Reykjavík vilja auka völd íbúa með því að leggja til að 10% kosningabærra manna í borginni geti farið fram á kosningar um mikilvæg mál og 25% geti farið fram á nýjar borgarstjórnarkosningar.
Atvinnumál eru einnig í forgrunni hjá Frjálslyndum en flokkurinn telur að efla þurfi bæði sjávarútveg og iðnað í höfuðborginni en auk þess skuli Reykjavík leita allra leiða til að skapa meiri verðmæti með þekkingu og nýsköpun. „Reykjavíkurborg
verður að auka mannaflsfrekar framkvæmdir sem hafa ekki mikinn
efniskostnað í för með sér.
Reykjavíkurborg hafi sem stefnu
að kaupa innlendar vörur," segir á vefsíðu flokksins.
Megináherslur Frjálslynda flokksins í Reykjavík






