Fjölskyldan og atvinna á oddinum hjá Framsókn í Kópavogi

Framsóknarmenn í Kópavogi kynntu málefnaskrá sína í dag. stækka

Framsóknarmenn í Kópavogi kynntu málefnaskrá sína í dag.

Fjölskyldumál og atvinnumál ungs fólks í Kópavogi eru á oddinum hjá Framsóknarmönnum í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar, að því er fram kom í máli Ómars Stefánssonar oddvita flokksins þegar málefnaskrá flokksins var kynnt á blaðamannafundi í dag.

„Framsóknarmenn leggja áherslu á að ekkert barn verði útundan.  Það á við hvort sem er í íþrótta-, æskulýðs eða öðru félagsstarfi. Ekkert barn verði án aðgangs að dægradvöl eða skólamáltíðum vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða forráðamanna," segir í tilkynningu frá Framsókn í Kópavogi.

Þá segir að framsóknarmenn leggi áherslu á sparnað í rekstri bæjarfélagsins og vilji flatan 10% niðurskurð á launum bæjarfulltrúa og nefndarfólks. Einnig að fækka skuli nefndum  og teknar verði upp viðræður við nágrannasveitarfélög um nánara samstarf og samvinnu á sem flestum sviðum.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að í samvinnu við Vinnumálastofnun og fyrirtæki telja Framsóknarmenn að hægt sé að skapa 300 störf fyrir atvinnulaus ungmenni á aldrinum 18-24 ára.

Flokkurinn vill að gerður sé samningur við fyrirtæki í Kópavogi og bærinn og Vinnumálastofnun komi að greiðslu hluta launanna á meðan starfsmaðurinn er að vinna sér inn reynslu og þekkingu. Í framhaldinu sé þá fyrirtækið komið með vel hæfan starfsmann sem það hefur hag í að halda áfram í vinnu innan fyrirtækisins.

Málefnaskrá Framsóknarflokksins í Kópavogi

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is