H - listinn vill endurskoða framkvæmdir við tónlistarhúsið
H listinn, framboð um heiðarleika og almannahagsmuni, undir forystu Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa hefur birt stefnumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Eftirfarandi mál verða sett á oddinn, samkvæmt tilkynningu frá framboðslistanum:
„Forgangsröðun í þágu velferðar og öryggis borgarbúa
Flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni
Stöðvun rándýrra framkvæmda sérstaklega Orkuveitunnar sem þjóna undir
erlend málmbræðslufyrirtæki.
Tryggt skal að eigur og auðlindir almennings lendi ekki í höndum
einkaaðila.
Forgangsröðun en ekki skattahækkanir, nema á auðmenn og erlend
málmbræðslufyrirtæki.
Lækkun fasteignagjalda fyrir aldraða og öryrkja svo að þeir geti búið sem
lengst á sínum heimilum
Efling heimahjúkrunar og heimaþjónustu.
Tekið verði á íbúðarmálum borgarbúa m.a. með fjölgun leiguhúsnæðis.
Lækkun eða niðurfelling gjaldskrár fyrir börn, unglinga,aldraða og öryrkja.
Tekjutengd frístundarkort.
Endurskoðun framkvæmda á Tónlistar-og ráðstefnuhúsi við höfnina.
Menningar- og náttúruverðmæti borgarbúa verði höfð í heiðri og nýtt með
sjálfbærum og gjaldeyrisskapandi hætti.
Ferðaþjónusta og nýsköpunnarverkefni verði stórefld.
Sameining sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Stórefldar almenningssamgöngur.
Frítt í strætó fyir börn, unglinga, aldraða og öryrkja.
Íbúalýðræði verði eflt.
30 km. hámarkshraði í öllum hverfum borgarinnar
Styrkir til stjórnmálasamtaka og stjórnmálamanna verði felldir niður og
óheimilt verði að þigga kosningastyrki.
Eitt samfélag fyrir alla."






