Oddvitar svara stúdentum

Háskólatorg.
Háskólatorg.

Oddvitar allra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík verða samankomnir á málþingi Vöku um málefni stúdenta á Háskólatorgi Háskóla Íslands kl. 13 á morgun.

Í tilkynningu frá Vöku segir, að þar gefist kjörið tækifæri fyrir almenning til að spyrja oddvitana um þau mál sem helst brenna á vörum fólks, þegar stutt er í kosningarnar. Tekið er fram, að málþingið er öllum opið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert