Ekki endilega sömu nöfn á kjörseðli og framboðslista
Björg Eva Erlendsdóttir er í sjöunda sæti hjá Vinstri grænum í Reykjavík. Hún heitir Þorbjörg Eva á framboðslista og í þjóðskrá en Björg Eva á kjörseðli. mbl.is/Haraldur Guðjónsson
Nöfn frambjóðenda eins og þau birtast Reykvíkingum á kjörseðlinum næstkomandi laugardag eru ekki endilega nákvæmlega eins og þau nöfn sem birt hafa verið á framboðslistum. Ekki er kveðið á um í lögum að nöfn frambjóðenda séu birt eins og þau birtast í þjóðskrá.
Fullt nafn frambjóðanda í sjöunda sæti Vinstri grænna í borginni er Þorbjörg Eva Erlendsdóttir. Þannig er nafn frambjóðandans í þjóðskrá og þannig er það birt á kosningavef dómsmálaráðuneytisins. Á kjörseðlinum kemur hins vegar til með að standa Björg Eva Erlendsdóttir.
Að sögn Kristínar Edwald formanns kjörstjórnar í Reykjavík fengu framboðslistar kjörseðilinn til yfirlestrar áður en hann fór í prentun og gátu gert athugasemdir við það hvernig nöfn eru birt.
Lögum samkvæmt ber að rita fullt nafn frambjóðanda á framboðslista en ekki er kveðið á um fullt nafn í þeirri lagagrein sem fjallar um kjörseðla. Hvorki er skylt að birta nafn frambjóðanda nákvæmlega eins og það er ritað í þjóðskrá á framboðslista né á kjörseðil.
„Miðað er við að kjósandi átti sig á því um hvaða einstakling ræðir. Einhverjar undantekningar geta verið á því að nöfnin séu nákvæmlega eins á kjörseðli og þau eru skráð í þjóðskrá," segir Kristín.
Alfreð og Vilhjálmur báðir undir öðru nafni í þjóðskrá og á kjörseðli
Fleiri dæmi munu vera um að misræmi sé á milli þess hvernig nafn einstaklings á framboðslista er birt í þjóðskrá og hvernig það er ritað á kjörseðil.
Fullt nafn Alfreðs Þorsteinssonar sem þannig er skráður sem aftasti maður á lista Framsóknarmanna í Reykjavík er samkvæmt þjóðskrá Alfreð Þór Þorsteinsson. Á vef dómsmálaráðuneytisins og á kjörseðlinum er millinafninu hins vegar sleppt.
Þessu er öfugt farið með forseta borgarstjórnar sem vermir aftasta sæti lista Sjálfstæðismanna. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er þannig skráður á lista og á kjörseðil, en í þjóðskrá er fullt nafn hans skráð Vilhjálmur Vilhjálmsson.






