Innlent
|
Kosningar
| Morgunblaðið
| 29.5.2010
| 5:30
| Uppfært
8:14
Kjörstaðir opnaðir klukkan 9
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, gerð klár fyrir beina útsendingu í Sjónvarpinu í gærkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Mikil spenna er í flestum sveitarfélögum og óvissa, enda benda skoðanakannanir til að mikil endurnýjun muni eiga sér stað.
Samkvæmt könnun sem Capacent gerði fyrir Ríkisútvarpið og birt var í gærkvöldi fengi Besti flokkurinn sex borgarfulltrúa í Reykjavík, einum minna en samkvæmt könnun sem Capacent gerði fyrir Morgunblaðið og birt var í vikunni. Sjálfstæðisflokkur bætir í sömu könnun við sig einum manni og fengi fimm, Samfylkingin þrjá og Vinstri grænir einn. Önnur framboð næðu ekki manni inn í borgarstjórn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






