Meirihlutinn féll í Kópavogi

Sjálfstæðismenn fylgdust með tölum í Kópavogi stækka

Sjálfstæðismenn fylgdust með tölum í Kópavogi mbl.is/hag

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Kópavogi og fær fjóra bæjarfulltrúa þegar talningu atkvæða er lokið í bæjarfélaginu. Alls fékk Sjálfstæðisflokkurinn 30,2% atkvæða og missti einn bæjarfulltrúa. Framsóknarflokkurinn fær einn mann, fékk 7,2% atkvæða. Samfylkingin fær þrjá menn kjörna, 28% atkvæða og missir einn. Vinstri grænir fá 9,8% atkvæða og einn mann í bæjarstjórn. Næst besti flokkurinn fær 13,8% og einn mann kjörinn og Y listinn fær 10,2% atkvæða og einn mann kjörinn.

Meirihlutinn féll því í  Kópavogi en Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynduðu síðasta meirihluta í bæjarfélaginu.

Alls greiddu 14.704 atkvæði í Kópavogi og voru 970 seðlar auðir. 

Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins er Ómar Stefánsson. 

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru: Ármann Kr. Ólafsson, Hildur Dungal, Gunnar I.Birgisson og Margrét Björnsdóttir.

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar: Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson og Pétur Ólafsson.

Bæjarfulltrúi VG: Ólafur Þór Gunnarsson

Bæjarfulltrúi Næst besta flokksins: Hjálmar Hjálmarsson

Bæjarfulltrúi Y-lista Kópavogsbúa: Rannveig H. Ásgeirsdóttir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is