Skynsamlegt að halda sama meirihluta

Eiríkur Finnur Greipsson. stækka

Eiríkur Finnur Greipsson. Bæjarins besta

„Mér líst ekkert illa á fyrstu tölur, en ég vona að þær batni. Mjög hefur verið sótt að Sjálfstæðisflokknum að undanförnu, og miðað við okkar væntingar er þetta innan marka," segir Eiríkur Finnur Greipsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði.

Samkvæmt fyrstu tölum á Ísafirði heldur meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks með samanlagt fimm menn. Í-listinn er hins vegar stærsta framboðið með 44% atkvæða og fjóra menn, miðað við 39% Sjálfstæðisflokks. Eiríkur segist vonast eftir því að meirihlutasamstarf síns flokks við Framsóknarflokkinn haldi áfram. Sigurður Pétursson sagði í samtali við mbl.is fyrr í kvöld að Í-listinn hygðist sækjast eftir að starfa með Framsóknarflokknum í meirihluta: „Ég skil Sigurð mjög vel, sá pólitíkus sem ekki myndi vilja komast í meirihluta væri lélegur pólitíkus. Sigurður hefur verið utan meirihlutasamstarfs til langs tíma og vilja auðvitað komast til áhrifa. Ég samt trúi samt ekki öðru en að Framsókn meti samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn þess eðlis að skynsamlegt sé að halda því áfram," segir hann.

Eiríkur segir vissulega vonbrigði að Sjálfstæðisflokkurinn fái færri atkvæði en Í-listann: „Auðvitað eru það vonbrigði. Hins vegar má ekki gleyma því að Sjálfstæðisflokkurinn sigraði mjög glæsilega fyrir fjórum árum, og flokkurinn hefur sætt stöðugum árásum Í-listans allt frá síðustu kosningum. Í-listinn samanstendur þremur flokksbrotum og óháðum, þannig að ef þeir stæra sig af því að vera stærri en Sjálfstæðisflokkurinn má alveg gera grín að svoleiðis sigri," segir Eiríkur við mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is