Besti árangur framsóknarmanna

Ísólfur Gylfi Pálmason stækka

Ísólfur Gylfi Pálmason mbl.is

„Við erum glöð og þakklát. Þetta er ekki eins manns verk heldur erum við með mjög sterkan lista og mikið og gott mannval og það skóp þennan sigur,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, oddviti framsóknarmanna í Rangárþingi eystra. Framsóknarflokkurinn í samstarfi við framfarasinna fékk þar hreinan meirihluta, eða tæplega 54% greiddra atkvæða, sem skilaði honum fjórum af sjö sveitarstjórnarmönnum.

„Þetta er besti árangurinn hjá flokknum á landsvísu,“ segir Ísólfur Gylfi. Spurður hvernig hann skýri gott gengi flokksins í sveitarfélaginu segir Ísólfur Gylfi það vera blöndu af góðum málefnum og framúrskarandi fólki. 

Að sögn Ísólfs Gylfa tekur nýr meirihluti við 15. júní nk. Tekur hann fram að menn hafi enn ekki skipt með sér verkum. „Ég þarf að klára þau verkefni sem fylgja núverandi starfi mínu sem sveitarstjóri í Hrunamannahreppi á Flúðum áður en ég tek við sveitarstjórnarstarfinu í Rangárþingi eystri sem eru mínir heimahagar sem ég sæki í ,“ segir Ísólfur Gylfi. Tekur hann fram að sér þyki afar vænt um það að vera snúa heim í heimabyggð sína, en hann er fæddur og uppalinn í sveitarfélaginu. Ítrekar hann að sér þyki auðvitað eftirsjá af Hrunamannahreppi enda mörg spennandi verkefni þar framundan.

Spurður hver séu brýnustu verkefnin í Rangárþingi eystri segir Ísólfur Gylfi ljóst að framundan séu mjög mörg krefjandi verkefni aðkallandi sem tengjast gosinu og ekki útséð með hvernig það fari. „En fjárhagsstaða sveitarfélagsins er góð, en það sama á reyndar líka við um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins sem ég er að hætta í,“  segir Ísólfur Gylfi. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is