„Fjögurra flokka stjórn án Sjálfstæðisflokks"

Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Kópavogi. stækka

Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Kópavogi.

Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Kópavogi, segir að einsýnt sé að ekki verði myndaður tveggja flokka meirihluti í bæjarfélaginu án aðkomu Sjálfstæðisflokksins. „Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemur ekki að bæjarstjórn verður það fjögurra flokka meirihluti," segir hann.

Öll atkvæði hafa verið talin í Kópavogi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn, Samfylkingin þrjá, Framsóknarflokkurinn einn, Vinstri-grænir einn, Næstbesti flokkurinn einn og Listi Kópavogsbúa einn.

„Miðað við síðustu skoðanakannanir unnum við, og því er þetta varnarsigur fyrir okkur. Athyglisvert er að minnihlutinn í síðustu bæjarstjórn á engan þátt í að fella meirihlutann, því Samfylkingin tapar manni."

Ármann segir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi hafa gengið óbundinn til kosninga. Hann útilokar ekki meirihlutasamstarf við Samfylkinguna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is