Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 30.5.2010
| 2:55
Hreppsnefndin endurkjörin í Ásahreppi
Kálfholt í Ásahreppi. www.mats.is
Allir hreppsnefndarmenn í Ásahreppi voru endurkjörnir í dag en þar var óhlutbundin kosning. Á kjörskrá voru 134 og alls kusu 106 eða 79,1%.
Röð aðalmanna í hreppsnefnd er þessi, að því er fram kemur á vef Sunnlenska:
1. Eydís Indriðadóttir, Ási 77 atkvæði
2. Egill Sigurðsson, Berustöðum 65 atkvæði
3. Ísleifur Jónasson, Kálfholti 42 atkvæði
4. Erlingur Jensson, Lækjarbrekku 42 atkvæði
5. Renata Henneman, Herríðarhóli 41 atkvæði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






