Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 30.5.2010
| 1:49
Staða Framsóknar er skást
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir flokkinn hafa notið þess að hafa endurnýjað sig. „Hann er að koma skást út úr þessu af þessum margumrædda fjórflokki. Og nær að vega upp fylgið utan þessara þéttbýliskjarna á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði hann í samtali við RÚV.
„Augljóslega er þetta áfall fyrir fjórflokkinn,“ segir Sigmundur. Spurður út í stöðu Framsóknarflokksins sérstaklega segir hann hann ekki hafa orðið fyrir jafn miklu áfalli og hinir flokkarnir. „En þegar hann er flokkaður á sama hátt. Og allir flokkarnir settir í saman í einn hóp. Þá er þeim öllum refsað saman.“
Endurnýjun Framsóknarflokksins hafi hins vegar skilað árangri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






