Engin áhrif af útstrikunum í Hafnarfirði

Rósa Guðbjartsdóttir og Valdimar Svavarsson, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði voru oftast strikuð út að sögn ... stækka

Rósa Guðbjartsdóttir og Valdimar Svavarsson, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði voru oftast strikuð út að sögn formanns kjörstjórnar. hag / Haraldur Guðjónsson

Töluvert var um að útstrikanir og breytingar á listum flokka í Hafnarfirði, að sögn formanns kjörstjórnar. Þó var fjöldinn ekki slíkur að hann hefði áhrif á uppröðun frambjóðenda. Útstrikanir voru flestar hjá Sjálfstæðislokki og Samfylkingu en hverfandi hjá Vinstri grænum.

Að sögn Jónu Óskar Guðjónsdóttur, formanns kjörstjórnar í Hafnarfirði, voru tveir efstu frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokks, Valdimar Svavarsson og Rósa Guðbjartsdóttir, oftast strikaðir út og hjá Samfylkingu Margrét Gaua Magnúsdóttir sem vermdi þriðja sæti listans.

Einnig var töluvert um að kjósendur breyttu röð frambjóðenda og algengast, að sögn Jónu Óskar, að bæjarstjórinn Lúðvík Geirsson væri færður úr sjötta sæti upp í það efsta.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is