Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 31.5.2010
| 19:09
| Uppfært
19:59
Úrslit á Dalvík standa
Úrslitin í Dalvíkurbyggð standa. Þetta staðfestir Bragi Jónsson, formaður kjörstjórnar Dalvíkurbyggðar, en endurtalningu atkvæða var að ljúka.
Atkvæðin voru endurtalin að ósk B-lista framsóknarmanna. J-listi óháðra fékk fjóra menn kjörna í sveitarstjórn og náði hreinum meirihluta. B-lista Framsóknarflokks vantaði aðeins eitt atkvæði upp á að fella fjórða mann J-listans.
„Allir seðlar voru skoðaðir og taldir aftur og niðurstaðan stendur. Það munar eftir sem áður aðeins einu atkvæði á flokkunum tveimur,“ segir Bragi í samtali við mbl.is. Spurður hvort mörg atkvæði hafi talist vafaatkvæði segir Bragi þau hafa verið 13 og hafi sú tala haldist óbreytt milli talninga.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






