Frumvarpið féll á tíma

Kjörkassar úr Ráðhúsi Reykjavíkur á leið í geymslu. stækka

Kjörkassar úr Ráðhúsi Reykjavíkur á leið í geymslu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Til skoðunar var í allsherjarnefnd Alþingis í byrjun maímánaðar að nefndin flytti frumvarp til breytinga á lögum um kosningar til sveitarstjórna.

Markmiðið var að samræma ákvæði um vægi útstrikana til jafns við það sem er í lögum um kosningar til Alþingis, en þar er vægi útstrikana mun meira.

Árni Þór Sigurðsson, varaformaður allsherjarnefndar, segir að efasemdir hafi komið fram um að flytja frumvarpið svo skömmu fyrir kosningar þegar framboðsfrestir væru liðnir og kosning utan kjörfundar hafin. Því hafi verið fallið frá því að flytja frumvarpið.

Ekki er samræmi í lögum um kosningar til Alþingis annars vegar og til sveitarstjórna hins vegar. Eftir breytinguna á lögum um kosningar til Alþingis árið 2000 hefur verið mun erfiðara að breyta röð frambjóðenda við sveitarstjórnarkosningar en við alþingiskosningar. Við alþingiskosningar nægir mun lægra hlutfall eins og dæmi frá síðustu þingkosningum sýna. Í ákveðnum tilvikum geta um 10% útstrikanir á lista til þingkosninga haft áhrif á röðun.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is