Innlent
|
Kosningar
| Morgunblaðið
| 1.6.2010
| 5:30
| Uppfært
5:50
Karlar oftar í forsvari: Karlar efstir - konur í öðru
Í nýafstöðnum kosningum leiddu konur 46 af 185 framboðslistum landsins, en það nemur rétt tæpum fjórðungi oddvitasætanna. Gegndu karlar því langtum oftar oddvitastöðu á listum. Kemur þetta fram í samantekt frá Jafnréttisstofu.
Þegar litið er til efstu tveggja sæta listanna eru hlutföllin nokkuð jafnari, en 44% þeirra sem skipa sæti eitt og tvö eru konur. Í fjórum efstu sætum listanna eru konur 45%. Samtals 2.846 manns eiga sæti á listum um land allt og eru konur 47% þeirra, 1.330 á móti 1.516 körlum.
Samantektin náði til þeirra sveitarfélaga þar sem tveir eða fleiri listar buðu fram.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






