Leynifundir boðaðir næstu daga

Jón Gnarr á fundi með félögum sínum í Besta flokknum …
Jón Gnarr á fundi með félögum sínum í Besta flokknum í gærkvöldi mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á morgunfundi oddvita Samfylkingarinnar, Dags B. Eggertssonar, og eins af efstu mönnum af lista Besta flokksins, Óttarrs Proppé, voru lögð drög að stundaskrá þeirrar vinnu sem framundan er. Komist var að samkomulagi um að vinnan færi fram í formi leynifunda.

Næstu daga munu borgarfulltrúar og félagar flokkana hittast á röð leynifunda þar sem eftirfarandi málaflokkar verða til umfjöllunar:

Þriðjudagur 1. júní: Leynifundur um atvinnumál, leikskóla- og menntamál, skipulagsmál, velferðarmál, og fjármál Reykjavíkurborgar.

Miðvikudagur 2. júní: Leynifundur um auðlinda- og umhverfismál, menningarmál, mál Orkuveitu Reykjavíkur og annarra fyrirtækja borgarinnar, og samgöngumál.

Fimmtudagur 3. júní: Leynifundur um tólfta málaflokkinn: Breytingar á stjórnskipan borgarinnar og aukin áhrif almennings á stjórn hennar. Verkaskipting.

Leynifundum verður bætt við eftir því sem þurfa þykir uns verkinu er lokið, að því er segir í fréttatilkynningu frá Besta flokknum.

Af þessu tilefni hefur verið opnaður vefurinn „Betri Reykjavík“ þar sem Reykvíkingum gefst kostur á að koma á framfæri tillögum sínum og hugmyndum við þá sem leynifundina sitja. Verða umræður á „Betri Reykjavík“ hafðar til hliðsjónar á fundunum.

Í ljósi reynslunnar, og þess að nýtt fólk er að mæta til starfa í borgarstjórn, ætla Besti flokkurinn og Samfylkingin að taka góðan tíma í viðræðurnar. Þau biðja því fjölmiðlana um að gefa sér og íbúum borgarinnar næði til þess að setja saman trausta málaskrá um betri Reykjavík næstu fjögur árin," segir enn fremur í fréttatilkynningu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert