Málefnavinnan er langt komin

Fulltrúar fjögurra flokka hófu viðræður um myndum meirihlta í Kópavogi í gær. stækka

Fulltrúar fjögurra flokka hófu viðræður um myndum meirihlta í Kópavogi í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Oddvitar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Hafnarfirði ákváðu í gærkvöldi að hefja formlegar meirihlutaviðræður. Málefnavinna fjögurra flokka í Kópavogi er langt komin og telur oddviti Samfylkingarinnar að vinna við myndun nýs meirihluta fari langt í dag.

Fulltrúar Samfylkingarinnar, VG, Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins hafa rætt saman um myndun nýs meirihluta frá því á sunnudag. Flokkarnir eru samtals með sex fulltrúa, Samfylkingin þrjá og hinir einn hver. Í gær var langur fundur viðræðunefndar sem skipuð er tveimur fulltrúum frá hverju framboði. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segir að fulltrúarnir séu að ljúka málefnavinnu.

Hún segir að oddvitar flokkanna hittist í dag og þá verði jafnframt rætt um verkaskiptingu. Hún telur að vinnan fari langt í dag, jafnvel að það takist að ljúka henni. „Ég er mjög bjartsýn. Það er ótrúlega mikill samhljómur á milli þessara hópa,“ segir Guðríður.

Guðmundur Rúnar Árnason, oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði, segist vongóður um að viðræðurnar við VG gangi vel. Í gærkvöldi hafi ýmis málefni verið til umræðu og í dag hefjist viðræður af fullu kappi. „Ég held að það séu allar forsendur fyrir því að þetta gangi vel.“ Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti Vinstri grænna, tekur í sama streng.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is