Mótmæla ásökunum þingmanns

Guðmundur Steingrímsson í ræðustóli á Alþingi.
Guðmundur Steingrímsson í ræðustóli á Alþingi. mbl.is/Heiðar

Framsóknarfélag Seyðisfjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er  harðlega ásökunum Guðmundar Steingrímssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, í garð forystu flokksins vegna lélegs árangurs á höfuðborgarsvæðinu og þá einkum í Reykjavík.

„Ástæðu fylgistapsins má fyrst og fremst rekja til þess að framsóknarmenn í Reykjavík hafa ekki borið gæfu til að starfa saman af heilindum eins og í öðrum flokksfélögum.

Því skorar Framsóknarfélag Seyðisfjarðar á framsóknarmenn í Reykjavík að slíðra sverðin og taka höndum saman um að framfylgja stefnu flokksins í þágu þjóðarinnar stað þess að vera í stöðugum erjum vegna meintra persónulegra hagsmuna," segir í ályktuninni, sem samþykkt var í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert